Fjallaskíði

FJALLASKÍÐUN Í DÓLOMÍTUNUM

Fjallaskíðaþverun í hinum margrómuðu Dólomítum þar sem ferðast er á milli fjallaskála umkringdur mögnuðum kalksteinsturnum. Heimsklassa skíðaferð, ítölsk matarmenning og ómótsæðilegar púðurbrekkur.

from: 395.000 kr.

Book now
  • image description
    Trip dates 8.-15.Feb 2025
  • image description
    SeasonFeb-Mars
  • image description
    Duration8 dagar
  • image description
    DifficultyMiðlungs form

Tour Overview

Dolomítarnir eru heimsþekktir fyrir dramatískt landslag og utanbrautarskíðun sem erfitt er að toppa. Við munum ferðast á milli fjallaskarða, umkringd tignarlegum kalksteinsturnum. Í leit af ósnertu púðri skíðum við langa dali og brekkur, nokkrar af bestu brekkum á svæðinu. Það sem mun gera þetta ferðalag ennþá betra er gestrisni heimamanna þegar við komum í skálana og ómótstæð ítölsk matarmenning sem við fáum að upplifa á hverjum degi.

Ferðin byrjar í San Vito di Cadore sem er nágrannabær Cortina d’Ampezzo þar sem við förum byrjum ferðina á því að fara á skíðaasvæði í nágrenninu til að koma okkur í gang fyrir ferðina. Næstu fimm daga skíðum við á milli fjallaskála með hóflegri blöndu af upp göngu og puðurtrylling á leiðinni niður.
Svæðið ef fjölbreytt og margir tindar í boði í kringum hvern skála fyrir sig svo það er hægt að finna verkefni sem hentar flestum.
Síðasta skíðadaginn rennum við okkur svo alla leið niður til byggða aftur og tökum leigubíl á hótelið í San Vito.

Það er mikil saga á bakvið Dolomítana en svæðið mikilvægt í fyrri heimstyrjöldinni þar sem Ítalía og Austro-Ungverjaland börðust. Á leið okkar um fjöllin munum við sjá skír merki stríðsminja eins og skurði, virki og göng.

Fjallaskíðaferð í Dolomítunum ætti að vera á óskalista allra sem hafa unun af fjallaskíðum!

Nákvæmar upplýsingar

Hér að neðan eru ítarlegri upplýsingar fyrir ferðina. Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

Líkamlegt form: Miðlungs, fær um að ganga 250-300m hækkun á klst í 5-7 klukkutíma.
Reynsla: Reyndur byrjandi, einhver fyrri reynsla en vantar aukið sjálfstraust.

Participants have to be able to skin up and ski down up to 1000 vertical meters, ski with confidence and link turns in off piste terrain.
Þátttakendur þurfa að geta skinnað upp og skíðað niður 1000 hæðarmetra, skíðað af öruggi og tengt beygjur í utanbrautar landslagi.

Group tour (4-6 participants)
Frá 395.000 kr. á mann.

Framboð á skálagistingu getur haft áhrif á verð. Ef breyta þarf skipulagi ferðarinnar vagna framboðs á gistiplássi í skálum getur það haft áhrif á verð ferðarinnar.

Fyrir private bókanir vinsamlegast hafið samband við okkur.

Undirbúningsfundur á Íslandi:
Nokkrum vikum fyrir ferðina höldum við undirbúningsfund fyrir hópinn. Við förum yfir ferðaskipulagið og þátttakendum gefst tækifæri á því að að spyrja spurninga og fá ráð varðandi búnað.

Dagur 1: Ferðalag til San Vito di Cadore
Besta leiðin til að komast til San Vito di Cadore er með flugi til Feneyja. San Vito er smábær staðsettur rétt fyrir sunnan Cortina d’Ampezzo í sama dal. Til að komast til San Vito er best hægt að taka leigubíl eða rútuna, Cortina express:
Cortina Express
Um kvöldið á hótelinu er lokaundibúningur þar sem við pökkum ofan í bakpokana og gerum okkur klár fyrir að fara á skíði.

Dagur 2: Utanbrautarskíðun í kringum Cinque Torri
Að loknum morgunmat tökum við strætó upp í Passo Falzarago (2105m). Við byrjum rólega og skíðum okkur í gang og nýtum lyfturnar á svæðinu og förum í stuttar fjallaskíðagöngur í kringum hinn vel þekkta klettaturn, Cinque Torri. Lyfturnar á svæðinu gera okkur kleift að komast hratt upp í hæð og auðvelda okkur að þefa uppi ósnertar púðurbrekkur. Dagurinn fer í að slípa til utanbrautarskíðunina og leiðsögumaður mun gefa tilsögn í skíðatækni.
Í lok dags tökum við lyftu upp í fjallaskálann Rifugio Lagazuoi (2752m) þar sem við gistum. Skálinn er staðsettur á klettabrún, bein undir Pizzo Lagoazuoi þar sem lengstu via ferrata leið Dolomitana er að finna, en leiðin var ein af mikilvægari framlínum ítalska hersins á tímum seinni heimstyrjaldarinnar.

Dagur 3: Rifugio Lagazuoi – Refugio Fanes
Dagurinn byrjar á frábærri skíðun þar sem við rennum okkur niður til Capanna Alpina (1720m). Við setjum skinnin undir skíðin og vinnum okkur upp brattar brekkur í átt að Col de Locia (2069m).
Þegar komið er í skarðið opnast dalurinn og fáum við frábært útsýni yfir verkefni morgundagsins. Eftir auðvelt rennsli lendum við í Refugio Fanes fjallaskálanum og njótum þess besta sem Ítalía hefur uppá að bjóða: Gestrisni, frábær matur og gott rauðvín.

Hækkun: 545 m
Lækkun: 1170 m

Dagur 4: Monte Ciase (2894m)
Dagstúr frá skálanum þar sem við eigum möguleikann á því að skilja eftir auka búnað og ferðast með léttari bakpoka þegar við skíðum. Stefnan er sett á Monte Ciase, en frá skálanum eru margir möguleikar í boði. Monte Ciase býður upp á frábærar brekkur sem eru ekki of brattar en eru mjög langar og mun ekki valda púðurþyrstum fjallaskíðurum vonbrigðum.
Eftir að hafa rennt alla leið niður af toppnum setjum við skinnin undir til að komast upp stutta brekku, og rennum okkur svo niður í skálann þar sem við gistum aðra nótt.
Hækkun: 980 m
Lækkun: 980 m

Dagur 5: Refugio Fanes – Sennes hutte
Að morgunmat loknum kveðjum við Refugio Fanes og stefnum á brattari brekkur sem liggja upp í fjallaskarðið Forchella Ciamin (2395m). Við skíðum norð-vestur of niður að Pedrú skálanum. Þar skellum við skinnunum undir og eftir um 2ja tíma göngu erum við komin í Sennes skálann þar sem við gistum í tvær nætur.
Hækkun: 1180 m
Lækkun: 1110 m

Dagur 6: Muntijela de Sennes (2780)
Enn einn dagurinn út frá skála þar sem við getum ferðast með léttari poka. Við göngum upp á Muntijela de Sennes þar sem við höfum útsýni yfir flest alla Dolomítana. Við rennum okkur niður af topp og alla leið aftur í skálann þar sem við gistum aðra nótt.
Hækkun: 750 m
Lækkun: 750 m

Dagur 7: Sennes hut – Cortina
Á síðasta skíðadeginum okkar er stutt ganga upp að Rifugio Biella. Við skíðum svo alla leið niður að hinu fræga vatni Lago di Braies. Þaðan tökum við leigubíl aftur á hótelið okkar í San Vito.
Hækkun: 400 m
Lækkun: 1000 m

Day 8: Ferðadagur
Tími til að kveðja þessi kyngimögnuðu fjöll í Dolomítunum og fara heim. Við notum daginn til að ferðast aftur til Íslands.

Besta leiðin til að komast til San Vito er með tengiflugi til Feneyja, auðvelt er að finna flug á dohop.is.
Ferðalagið frá flugvellinum í Feneyjum til San Vito tekur tekur um 2 tíma og hægt er að taka leigubíl eða Cortina express:
cortina express bus.

Brottafararstaður Cortina express rútunnar er að finna hér:this location

Skilyrði fyrir bókun ferðarinnar er að þátttakendur séu með tryggingu sem innifelur í sér leit og björgun í fjalllendi.
Björgunarsveitir í Evrópu og Sviss áskilja sér rétt til að fara fram á full greiðslu fyrir björgunarkostnaði, sem og notkun á þyrlu við björgun.
Við mælum jafnframt með því að þátttakendur séu með viðeigandi ferðatryggingar

Asgard Beyond áskilur sér rétt til þess að breyta út af dagskrá ferðarinnar með tilliti til veðurs og aðstæðna hverju sinni. Þetta er gert með öryggi þátttakenda í huga og til að tryggja bestu mögulegu upplifun af ferðinni. Ef ferðatilhögun breytis mjög mikið gæti fylgt því auka kostnaður td. ef ekki er hægt að fara upp í hæð vegna veðurs og gista þarf á hóteli niðri á láglendi í staðinn, eða notast við skíðasvæði.

Skíðabúnaður

  • Fjallaskíði 95mm -105mm undir fæti
  • Fjallaskíðaskór
  • Skinn
  • Skíðastafir
  • Skíðabroddar

Tæknilegur búnaður

  • Bakpoki 35 -40L með skíðafestingum
  • Ísöxi (létt og fyrirferðalítil)
  • Mannbroddar (léttir)
  • Sigbeti (einfalt og létt göngubelti)
  • 120 cm slingur
  • Læstar karabínur x2
  • Snjoflóðaýlir (með nýjum batteríum)
  • Skófla
  • Snjóflóðastöng (240cm)

Fatnaður

  • Goretex jakki
  • Goretex buxur
  • Soft shell jakki (valkvætt, sumir kjósa að nota eingöngu skel)
  • Soft shell pants (valkvætt, sumir kjósa að nota eingöngu skel)
  • Þunnir hanskar
  • Þykkari hanskar
  • Húfa
  • Buff
  • Ennisband fyrir heitari daga
  • Innstalag, síðarema bolur (ull eða gerviefni)
  • Innstalag, föðurland (ull eða gerviefni)
  • Sunhat

Millilag

  • Einangrandi jakki, léttur (fiber eða dúnn)
  • Annar einangrandi jakki eða vesti, veltur á hversu kalt þér er (valkvætt)

Hitt og þetta

  • Sólgleraugu (cat 3-4)
  • Skíðagleraugu (með ljósri linsu)
  • Sólarvörn SPF 50
  • Varasalvi með UV vörn
  • Höfuðljós
  • skíðastrappi
  • Vatnsflaska 1L
  • Hitabúsi 0,5L (valkvætt)
  • Hælsærisplástrar og teip
  • Hleðslubanki til að hlaða síma
  • Nasl fyrir dagana (hnetur, orkustykki…)

Fyrir skálann

  • Auka ullarsokkar
  • Bolur
  • Eyrnatappar
  • Lakpoki
  • Peningur til að kaupa mat/drykki í skálanum (CHF)
  • Tannbursti, sápa…
  • Lítið þvottastykki (valkvætt)

Hvað er innifalið

  • Undirbúningsfundur með leiðsögumann fyrir ferð
  • 2 nætur á hóteli í San Vito di Cadore
  • 5 nætur í fjallaskála með morgunmat og 3ja rétta kvöldverði
  • Kostnaður leiðsögumanns
  • Íslensk leiðsögn með alþjóðlega vottuðum leiðsögumönnum (IFMGA)

Hvað er ekki innifalið

  • Flug fram og til baka
  • Ferðalag til og frá fluvelli og aðrir leigubílar/rútur
  • Kvöldmatur á hóteli
  • Hádegismatur og drykkir í skálum
  • Skíðapassi fyrir fyrsta daginn
  • Auka ferðalög og/eða gisting ef ferðatilhögun breytist vegna veður eða aðstæðma
  • Slysa og ferðatryggingar

Ertu með einhverjar spurningar?

Hér að neðan eru svör við algengum spurningum varðandi ferðina. Ef þú finnur ekki svarið, ekki hika við að hafa samband við okkur.

  • I’m a vegetarian/vegan, can special diets be accommodated?

    We will ensure that our guests with different dietary needs are looked after.
    All huts can offer a vegetarian option but is is important that you let us know in advance so the hut keeper can plan for this.
    Vegan option can be difficult to come around. Pleas get in touch with us and we can advice you on the possibilities.

  • What are the huts like?

    The huts are often very remote and sitting at high altitude, which means the comfort level is basic. They are clean and cozy and have everything you would wish for an overnight stay.

    Most of the huts have a hostel style dormitories where people have their own small space in a bunk bed. The hut provides blankets and pillows so you don´t have to carry a sleeping bag. Most of the time it is possible to charge your phone/camera in the hut but they do not have stable electricity so it is good to bring a power bank to charge your devices.

    The hut has a fully functioning kitchen and a bar where you can order lunch from a menu, coffee, cake or beer on tap. The quality of the water varies between huts and we recommend bottled water available for purchase at the hut.

Þetta hafa gestirnir okkar að segja

Ferð mín með Asgard Beyond um Silvrettu leiðina var bara akkúrat það sem vantaði í líf mitt! Þetta var mín fyrsta ferð með leiðsögumanni, en ég hef áður farið á svipaðar slóðir sjálf. Það er alger game changer að leyfa fagmanni að taka ákvarðanir um leiðarval útfrá aðstæðum. Maður fær miklu meira úr ferðinni og þorir lengra út úr þægindarammanum. Ætla pottþétt í aðra ferð sem fyrst!

Sara Axelsdóttir Ski touring guest

Fór í ferð með Asgard um Silvretta Traverse og gæti vart verið ánægðari með ferðina, líklega eitt besta frí sem ég hef farið í. Róbert, okkar frábæri leiðsögumaður, var í senn afskaplega fagmannlegur og skemmtilegur. Hann hélt vel um hópinn og tryggði sér gott traust frá fyrstu stundu. Mæli hiklaust með þessari ferð og fyrirtækinu í fjallabrasið.

Þórdís Bjarnadóttir Ski touring guest
Book now

Arc’teryX

Asgard guides wear Arcteryx gear because it is durable and keeps them warm and dry in challenging conditions.

Fjallakofinn

Fjallakofinn is an outdoor store in Reykjavík offering high quality outdoors products & a rental service.