Námskeið

Asgard – Beyond býður uppá fjölbreytt úrval fjallamennskunámskeiða fyrir einstaklinga sem vilja byggja upp færni og skilning á fjallaumhverfinu. Við sérhæfum okkur í kletta og ísklifri, almennum fjallamennskunámskeiðum og snjóflóðanámskeiðum fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Námskeiðin eru hagnýt og byggja á reynslu úr raunverulegum aðstæðum, þar sem áhersla er lögð á öryggi, góða ákvarðanatöku og sjálfstæði á fjöllum. Kennslan er í höndum alþjóðlega vottaðra fjallaleiðsögumanna – IFMGA með yfir 30 ára reynslu í faginu, sem miðla þekkingu sinni af fagmennsku og öryggi.

Snjóflóðanámskeið

Asgard – Beyond býður uppá snjóflóðanámskeið fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Námskeiðin eru hugsuð fyrir fjallaskíðafólk sem og vélsleðamenn sem vilja geta ferðast um fjalllendi af öryggi m.t.t. snjóflóða. Leiðbeinendurnir eru alþjóðlega vottaðir fjallaleiðsögumenn – IFMGA ásamt því að vera þjálfaðir í snjóflóðafræðum frá Kanadísku snjóflóðasamtökunum – CAA. Námskeiðin samanstanda af verklegri kennslu í fjalllendi ásamt bóklegri kennslu með áherslu á hvernig við ferðumst um snjóflóðalandslag m.t.t. snjóflóðahættu. Í verklega þættinum er áhersla lögð á leit og björgun úr snjóflóði á sem skilvirkastan hátt þegar kemur að ýlaleit, stangarleit og moksturstækni, því hver mínúta skiptir máli.

Decorative image

Alpa, kletta og ísklifur námskeið

Asgard – Beyond býður upp á fjölbreytt klifurnámskeið fyrir fólk sem stundar útivist og ævintýri sér til ánægju. Við bjóðum upp á faglega kennslu í klettaklifri, ísklifri og almennri fjallamennsku, þar sem þátttakendur byggja upp tæknilega færni og sjálfstraust. Öll námskeið eru leidd af alþjóðlega vottuðum IFMGA-fjallaleiðsögumönnum sem leggja áherslu á fagmennsku og öryggi. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í klifri eða stefnir á stærri alpa- eða fjallaverkefni, þá er grundvallaratriði að læra grunninn frá fagmönnum.

Decorative image