URNER HAUTE ROUTE
Fjallaskíðaferð fyrir þá sem vilja skíða langar brekkur í brattari kantinum. Meiri fókus á að skíða hæðarmetra frekar en að ferðast vegalengdir.
from: 395.000 kr.
Book now-
Trip dates 10-17.Mars 2026
15.-22.Mars 2026
-
SeasonMar-Apr
-
Duration8 dagar
-
DifficultyReyndir fjallaskíðamenn
Yfirlit ferðar
Urner Haute Route er hið fullkomna skíðaævintýri ætlað þeim sem eru góðir skíðamenn sem vilja frekar setja fókusinn á brattari skíðabrekkur frekar en að ferðast lengri vegalengd. Engelberg er staðsett í hjarta norður alpahryggsins í miðju Swiss og er eitt af betri off-piste skíða svæðunum í í ölpunum. Svæðið er þekkt fyrir mikið magn af púðri sem það fær á hverjum vetri.
Áherslan í ferðinni er á rennslið niður; brattar og langar skíðabrekkur sem krefjast þess að fólk hafi gott vald á skíðunum og geti skíða allt að 40° brattar brekkur í auðveldu færi. Ferðin er því fullkomin fyrir þá sem eru að leita sér að krefjandi fjallaskíðaferð þar sem líkur á botnlausu púðri eru miklar.
Ferðin hefst í Engelberg með einum degi af upphitun í off-piste skíðun út frá skíðasvæðinu Titlis. Eftir upphitunardaginn ferðumst við til Realp (nálægt Andermatt) þar sem við munum eyða næstu 5 dögum í fjöllunum, þar sem við ferðumst á milli fjallaskála frá Andermatt til Engelberg.
Þessi 8 daga krefjandi fjallaskíðaferð er fullkomin fyrir reynda skíðamenn sem eru í góðu líkamlegu ástandi.
Nákvæmar upplýsingar
Hér að neðan eru ítarlegri upplýsingar fyrir ferðina. Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.
Líkamlegt form: Öflugt form, Fær um að ganga 300-400m hækkun á klst í 8-12 klukkutíma.
Reynsla: Reyndur byrjandi, einhver fyrri reynsla en vantar aukið sjálfstraust.
Þátttakendur þurfa að hafa getu til að skinna allt að 1500 hæðarmetra á dag og skíða brekkur upp að 40° í góðum aðstæðum. Grunnþekking á beitingu á mannbroddum og ísöxi er skilyrði.
Opin ferð á dagsrká (4-6 þátttakendur)
Frá 395.000 kr. á mann
Fyrir prívat ferðir, vinsamlegast hafið samband.
Undirbúningsfundur fyrir ferð:
Við bjóðum upp á undirbúningsfund með leiðsögumanni fyrir hópinn nokkrum vikum áður en ferðin fer af stað. Þar gefst tækifæri til að spyrja spurninga og fá ráð um búnað og annað sem er óljóst.
Dagur 1: Ferðadagur
Auðveldasta leiðin til að komast til Engelberg er flug með Iceland Air til Zurich. Þaðan er fljótlegt og auðvelt að taka lestina til Engelberg. Um kvöldið borðum við saman og förum yfir ferðaplanið og svörum þeim spurningum sem koma upp.
Day 2: Utanbrautar skíðun í Engelberg
Engelberg er staðsett í for-ölpunum í miðju Sviss og er þekkt fyrir að fá mikið magn af snjó. Svæðið hentar einkum vel til utanbrautarskíðunar og bíður upp á 2000m fall hæð frá Klein Titlis og niður í bæ.
Við notum þennan dag til að koma lærunum í gang fyrir ferðina og skíða eins mikið púður og fjallið býður upp á.
Gistin á hóteli í Engelberg.
Dagur 3: Engelberg – Albert Heim skáli
Eftir morgunmat tökum við leigubíl til Realp, rétt við Andermatt, þar sem við byrjum að ganga. Við göngum áleiðis upp Furka skarðið, fjallavegur sem er lokaður á veturna. Stefnan er sett á Albert Heim fjallaskálan (2543m) þar sem við gistum um nóttina.
Hækkun: 1000m
Skíðun niður: 0m
Dagur 4: Albert Heim hütte – Gasthaus Göscheneralp
Eftir kjarngóðan morgunverð skellum við á okkur skíðunum, þverum undir Sunnig Berg og tökum stefnuna til norðurs upp í Winterlucke (2852m) fjallaskarðið. Í skarðinu sejum við skíðin á pokann, förum í brodda og vinnum okkur upp mjóan hrygg sem endar á toppnum á Lochberg (3079m). Frá toppnum skíðum við niður brattar brekkurnar brekkurnar í átt að Göshceneralpsee vatninu. Í lokin skíðum við auðveldan sumarveg sem leiðir okkur að gistiheimili niður í 1580m hæð þar sem við eyðum nóttinni.
Hækkun: 800m
Skíðun niður: 1700mm
Dagur 5: Gwüest – Voralphutte fjallaksáli
Við tökum morgunmatinn snemma og leggjum af stað til að fara upp á Schinstock (3161m). Til að komast á toppinn á fjallinu þurfum við að setja skíðin á bakið og nota öxi og brodda síðustu metrana. Ofan af toppnum á fjallinu skíðum við austurhlíðarnar niður í Voralp hütte fjallaskálann (2116m), en austurhíðar í for-ölpunum eru þekktar fyirr að geyma gott og mikið púður!
Hækkun: 1100-1600m
Skíðun niður: 1140m
Dagur 6: Voralphutte – Hotel Steingletcher
Í dag er löng þverun yfir jökul og tvö fjallaskörð og stærsti dagurinn framundan. Ef veður og aðstæður leyfa stefnu við á toppinn á Sustenhorn (3503m) sem er hæsti toppurinn í ferðinni. Frá toppnum á Sustenhorn skíðum við niður eina af klassísku brekkunum á svæðinu niður Steingletcher jökulinn þar sem við skíðum milli jökul sprungna og í gegnum ísfall. Við rennum okkur út úr jökuldalnum og endum á Hótel Steingletcher (1865m).
Hækkun: 1100-1500 m
Skíðun niður: 1800 m
Day 7: Hotel Steingletcher – Engelberg
Frá Steingletcher vinnum við okkur upp í næsta skarð undir Fünffingerstöck (2993m) og skíðum brattar brekkur niður á Wenden jökulinn. Síðasta uppganga ferðarinnar bíður okkar, um 400m hækkun upp í skarðið við Grassen Bivak. Frá skarðinu njótum við þess að skíða niður milli brattra klettaveggja og gilja undir Gross Titlis þar sem brekkan tekur okkur aftur niður í Engelberg dalinn. Við enda brekkunnar tökum við annaðhovort stuttan stætó eða leigubíl aftur til Engelberg (15min) þar sem við gistum síðustu nóttina á hóteli.
From Steingletscher we ascend up over the Fünffingerstöck (2993m) and, if conditions permit, a steep descent brings us to the Wenden Glacier. One last short skin brings us to Grassen Biwak (2647m), followed by a beautiful descent under the imposing walls of the Titlis to the Engelberg valley. At the end of the ski run we transit via taxi or bus (15min) to Engelberg where we stay for the night.
Hækkun: 1550m
Skíðun niður: 2450m
Day 8: Ferðadagur
Við kveðjum Engelberg og Alpana að sinni og nýtum daginn til að ferðast aftur til Íslands.
Skilyrði fyrir bókun ferðarinnar er að þátttakendur séu með tryggingu sem innifelur í sér leit og björgun í fjalllendi.
Björgunarsveitir í Evrópu og Sviss áskilja sér rétt til að fara fram á full greiðslu fyrir björgunarkostnaði, sem og notkun á þyrlu við björgun.
Við mælum jafnframt með því að þátttakendur séu með viðeigandi ferðatryggingar
Asgard Beyond áskilur sér rétt til þess að breyta út af dagskrá ferðarinnar með tilliti til veðurs og aðstæðna hverju sinni. Þetta er gert með öryggi þátttakenda í huga og til að tryggja bestu mögulegu upplifun af ferðinni. Ef ferðatilhögun breytis mjög mikið gæti fylgt því auka kostnaður td. ef ekki er hægt að fara upp í hæð vegna veðurs og gista þarf á hóteli niðri á láglendi í staðinn, eða notast við skíðasvæði.
Ski Skíðabúnaður
Tæknilegur búnaður
Fatnaður
Millilag
Hitt og þetta
Fyrir skálann
Hvað er innifalið
- Undirbúningsfundur fyrir ferð á Íslandi
- 3 nætur á hóteli í Engelberg
- 4 nætur í fjallaskálum með morgunmat og kvöldmat
- Kostnaður leiðsögumanns
- Íslensk leiðsögn með alþjóðlega vottuðum leiðsögumönnum (IFMGA)
Hvað er ekkiinnifalið
- Flug til og frá Íslandi
- Kvöldmatur á hóteli
- Hádegismatur og drykkir á hóteli og í skálum
- Ferðakostnaður til og frá flugvelli
- Skíðapassar í Engelberg
- Auka ferðalög og/eða gisting ef ferðatilhögun breytist vegna veður eða aðstæðna
- Ferða og slysatryggingar
Ertu með einhverjar spurningar?
Hér að neðan eru svör við algengum spurningum varðandi ferðina. Ef þú finnur ekki svarið, ekki hika við að hafa samband við okkur.
-
I’m a vegetarian/vegan, can special diets be accommodated?
We will ensure that our guests with different dietary needs are looked after.
All huts can offer a vegetarian option but is is important that you let us know in advance so the hut keeper can plan for this.
Vegan option can be difficult to come around. Pleas get in touch with us and we can advice you on the possibilities. -
What are the huts like?
The huts are often very remote and sitting at high altitude, which means the comfort level is basic. They are clean and cozy and have everything you would wish for an overnight stay.
Most of the huts have a hostel style dormitories where people have their own small space in a bunk bed. The hut provides blankets and pillows so you don´t have to carry a sleeping bag. Most of the time it is possible to charge your phone/camera in the hut but they do not have stable electricity so it is good to bring a power bank to charge your devices.
The hut has a fully functioning kitchen and a bar where you can order lunch from a menu, coffee, cake or beer on tap. The quality of the water varies between huts and we recommend bottled water available for purchase at the hut.